miðvikudagur, 28. nóvember 2007

Hættur hjá Frost í bili!

Er að vinna síðasta daginn hjá Kælismiðju Frost fimmtudaginn 29 nóv. Fer svo að vinna hjá Framtak í desember. Það eru viðbrigði að skipta um vinnu en þetta er liður í að klára vélstjóranámið og vonandi gengur vel á nýja vinnustaðnum. Stefnan er tekinn á að klára sveinspróf í vélvirkjun í mars á næsta ári og þá vonandi verður maður vélfræðingur.

Við hjónin ætlum norður á Akureyri um helgina í stutta heimsókn til vina og ættingja og er kærkomið að fá smá frí frá borginni. En það er búið að vera nóg að gera í vinnunni undanfarna daga og er það helst vinnan við nýju hagkaupsbúðina í holtagörðum sem er nýopnuð.

Segjum þetta gott í bili í fyrsta blogginu hérna.
Kv. Björn Ingi

þriðjudagur, 27. nóvember 2007

Nýtt bloggsvæði!

Ætla að prufa að blogga hérna og vonandi á maður eftir að setja upp skemtilegt blogg hérna í framtíðinni.
Gamla bloggið verður áfram virkt í einhvern tíma.
http://www.blog.central.is/bingij/

Kv.Björn Ingi